Egilshús á Stykkishólmi er næstelsta hús í bænum og var byggt árið 1865. Í dag er byggingin friðuð. a2f arkitektar hafa fengið það verkefni að teikna breytingar á húsinu, en því verður breytt í hótel.
07.10.2011
Teinkistofan Tröð, Kanon arkitektar, eitt A innanhúsarkitektar, mff landscapes og a2f arkitektar
26.09.2011
a2f arkitektar áttu vinningstillögu hönnunarsamkeppni um Framhaldsskólann í Mosfellsbæ, sem haldin var árið 2010. Unnið er nú að fullnaðarhönnun til útboðs.
BIM, Building Information Modelling, felur í sér s.k. upplýsingalíkön. Byggingin er teiknuð í þrívídd, bæði af arkitektum og verkfræðingum. Hönnuðir skiptast á og samkeyra líkön til að samræma upplýsingar og árekstrargreina byggingu. Til eru ýmsar handbækur sem hægt er að styðjast við, í FMOS er stuðst við Bips, danska handbók um BIM.
Byggingin er fyrsti skólinn á Íslandi sem er hannaður og verður byggður með vistvænni vottun samkvæmt BREEAM, alþjóðlega vottunarkerfinu. Einnig er stefnt að því að líftími byggingar verði reiknaður skv. LCC.
Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ er önnur opinbera byggingin þar sem BIM-aðferðarfræðin er notuð og sennilega verður hún fyrsta opinbera BIM-byggingin sem framkvæmd verður á Íslandi. Stefnt er að því að verkið verði boðið út í lok júní á þessu ári og að framkvæmdir hefjist í haust, 2011.
24.03.2011
a2f arkitektar & Arkís arkitektar komust áfram í forvali í samkeppni um gestastofu "Niederwalddenkmal" við Rüdesheim í Þýskalandi.
09.03.2011

a2f arkitektar taka þátt í Hönnunarmarsinum í ár. Sýning og fyrirlestraröð ber yfirskriftina "Ferlið". Arkitektum gefst kostur á því að kynna fyrir almenningi ferli í hönnun. AF arkitektar halda fyrirlestur um FMOS og BIM-aðferðarfræðina þann 26. mars n.k kl. 13.45 Sjá nánar dagskrá hér.
24.02.2011
FMOS - Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ
Sýning á samkeppnistillögum um nýjan framhaldsskóla
Staður: Mosfellsbær
16.04.-23.04.2010
HÚS FYRIR DÝR
Arkitektúr og rýmishönnun, Fjölbrautaskólinn í Breiðholti, vorönn 2009
Aðalheiður Atladóttir, Falk Krüger
Hanna átti byggingu fyrir tvö dýr og menn á Seltjarnarnes í Reykjavík. Byggingin á að svara þörfum mannanna og dýranna sem þar búa. Hún á einnig að bjóða upp á rými þar sem bæði menn og dýr geta verið og átt samskipti. Svæðið til byggingar er samtals ca 40 x 60 m. Til norðurs liggur gata, til suðurs er einkalóð og þar fyrir handan sjórinn. Hæðarmunur frá götu og að hinum enda lóðarinnar er 3 metrar. Lóðinni verður skipt niður í 4,5 metra breiða reiti. Mjórri endinn snýr að götunni. Hver reitur er 48 metra langur. Hver nemandi fær úthlutað einum reit og tveimur dýrum. Hver og einn á að skapa umhverfi þar sem ákveðið ferli eða spuni á milli þessara tveggja dýra og manna geta átt sér stað. Samspil hinna ytri skilyrða (lega lóðar, hæðarmunur osfrv) og inntaks hugmyndarinnar eiga þátt í að móta sérstaka og fagra byggingu.
12.03.2009
SÝNINGARSKÁLI VIÐ NORRÆNA HÚSIÐ
Fyrirlestur um hönnunarferli, Norræna Húsið, 6.4.2008
Aðalheiður Atladóttir, Falk Krüger
















































