INGÓLFSTORG - KVOSIN
Samkeppni um skipulag á Ingólfstorgi og frumhönnun hótels á keppnisreit
Í samstarfi við DLD LAND DESIGN, Dagný Bjarnadóttir
Samkeppni: mars 2012
„Höfuðból í hjarta borgar“
Við erum stödd á einu merkasta sögusviði borgarinnar, þar sem Ingólfur nam land, hér myndaðist fyrsta gatan í borginni. Jafnvel garðsagan á sitt upphaf hér, þar sem enn standa elstu tré borgarinnar. Sannkallað Höfuðból. Svæðið er hins vegar sundurlaust og án tenginga við umhverfi sitt, torgrýmin illa nýtt, og slæm tenging þeirra á milli. In- gólfstorg er eyja skorin frá umhverfinu með bílum. Saga Víkurgarðs er óljós nema þeim sem til þekkja. Gömul og falleg hús standa við ljóta brunagafla. Hönnun nýs hótels á svæðinu og breytingar á Ingólfstorgi og Víkurgarði fela í sér tækifæri til að binda aftur saman það sem sundur var slitið.
Umferð
Aðalstræti til vesturs, Hafnarstrætis til norðurs, Pósthússtræti til austurs verður bílfrítt svæði, fyrir utan þjónustu að morg- ni. Leyfilegt verður að læðast í gegnum Kirkjustræti á forsendum gangandi umferðar, en einungis rútur og leigubílar mega staldra þar við á merktum stæðum.
Pósthússtræti og sundin að höfninni verða göngugötur. Gamli hafnarkanturinn í Pósthússtræti verður gerður sýnilegur með áherslu á göngutengsl að Hörpu. Gamla strandlínan verður dregin fram í gegnum Kvosina. Tryggvagata verður einstefna til austurs með bílastæðum skuggamegin í götunni. Fyrir framan listasafnið er gert ráð fyrir rútustæði og leigubílum.
Ingólfstorg
Torgið opnast sem bjart og sólríkt í andstæðu við skuggsælt Austurstrætið, ljóst yfirborðsefni mun ýkja þá upplifun. Í efnisvali munu einnig timburbjálkar skírskota til gömlu bygginganna og bryggjanna. Hugsa mætti sér að mynstra í flötinn á einum stað öndvegissúlurnar eins og þær hafi nýlega rekið á land. Lýsingin verður lágstemd en þó verður hægt að skapa mismunandi stemningu yfir vetrartíman
Á suðurhluta torgsins mun hótel Höfuðból rísa, um 100 herbergi á 3,5 til 4 hæðum. Það lagar sig að þeirri byggð sem fyrir er og bindur saman gamalt og nýtt og tengir torgsvæðin saman með leiðandi veggjum á jarðhæð. Hótelið er eins og smækkuð útgáfa af borg með götum, görðum og torgi. Það endurspeglar þann byggingastrúktur sem er í Grjótaþorpinu og talar í efnis- vali, uppbroti og þakformi við gömlu húsin á svæðinu.
Aðalstræti 7 verður flutt norðar í götuna og myndar nú skemmtilegt rými með hótelinu og húsunum við Veltusund. Í þessu rými verður útfært grænt setsvæði sem janframt nýtist sem svið á móti torginu.
Víkurgarður
Víkurgarður var kirkjustæði um tíma og kirkjugarður frá 900-1838, en fékk þá hlutverk skrúðgarðs aðeins 45 árum eftir að síðasti maður var jarðsettur. Í garðinum stendur eitt elsta tré borgarinnar, gróðursett 1883. Í tillögunni er lagt til að þessi saga verði gerð sýnilegri. Tillaga Teiknistofunnar (Bautasteinn, 1. tbl., 7. árgangur, apríl 2002) um að opna aðgengi að landnáms- sýningunni undir Aðalstræti er nýtt í breyttri mynd. Kirkjustæðið verður grafið upp og gert sýnilegt. Að hluta til svífur torgið yfir rústunum, en skábraut liggur niður að innganginum. Falleg lýsing verður á gryfjunni og myndir af kirkjunni á veggnum á móts við innganginn. Húsið við Vallarstræti 4 mun standa í garðinum við Kirkjustræti og styrkja götumyndina þar og ljá garðinum eldra yfirbragð sem hæfir honum. Í garðinum verður útfærsla sem vekur minningar um gamla þúfnakirkjugarðinn, þar sem 30 jarðsettra kynslóða er minnst. þessar þúfur munu þó einnig þjóna sem sæti og leiksvæði fyrir börn. Núverandi minnisvarðar verða staðsettir á móts við kirkjustæðið.
REKAVIÐUR
Menningarmerkingar í Reykjavík
Í samstarfi við Matthias Kleyboldt
Samkeppni: 2008
Verkkaupi: Reykjavik
